Hittingur á föstudagskvöld kl. 20.00 á Sótastöðum

Við ætlum að koma saman og skrafa á föstudagskvöldið. Þetta með Desotoafmælið er orðið svo þreitt að tilefnið á morgun er 131 árs afmæli ömmu Erlings gjaldkera, ef hún hefði lifað. Svo stendur til að máta bílstjóra-kaskeiti sem komin eru loksins til landsins en þau eru bresk að uppruna og gekk því ekki þrautalaust að koma þeim heim. Það var ekki fyrr en Davíð hringdi í Brown, sagði okkur ekki vera óreiðumenn og Geir veitti okkur ríkisábyrgð að eitthvað fór að ganga.

Sjáumst hress.

Straumlínulagaðar stuðarakveðjur.

Ritarinn.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband